Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 720, 130. löggjafarþing 428. mál: stjórn fiskveiða (línuívilnun o.fl.).
Lög nr. 147 20. desember 2003.
Áður en leyfðum heildarafla er skipt á grundvelli aflahlutdeildar skal draga eftirtalið frá:
Þingskjal 720, 130. löggjafarþing 428. mál: stjórn fiskveiða (línuívilnun o.fl.).
Lög nr. 147 20. desember 2003.
Lög um breytingar á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
1. gr.
3. mgr. 7. gr. laganna orðast svo:Áður en leyfðum heildarafla er skipt á grundvelli aflahlutdeildar skal draga eftirtalið frá:
- Áætlaðan afla báta sem stunda veiðar með dagatakmörkunum.
- Aflaheimildir skv. 9. gr. og 9. gr. a.
- Aflaheimildir og áætlaðan afla til línuívilnunar skv. 10. gr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Til að mæta áföllum sem fyrirsjáanleg eru vegna verulegra breytinga á aflamarki einstakra tegunda.
- Til stuðnings byggðarlögum, í samráði við Byggðastofnun, þannig:
- Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum eða vinnslu á bolfiski.
- Til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum.
- 3. mgr. verður nýtt ákvæði til bráðabirgða við lögin og jafnframt koma tveir nýir málsliðir í stað 1. málsl., svohljóðandi: Á fiskveiðiárinu 2004/2005 er sjávarútvegsráðherra heimilt að úthluta samtals 500 lestum af ýsu, 500 lestum af steinbít og 150 lestum af ufsa, miðað við óslægðan fisk, til krókaaflamarksbáta sem gerðir eru út frá sjávarbyggðum sem að verulegu leyti eru háðar veiðum krókaaflamarksbáta. Á fiskveiðiárinu 2005/2006 skal ráðherra úthluta með sama hætti 250 lestum af ýsu, 250 lestum af steinbít og 75 lestum af ufsa.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður er orðast svo: Ráðherra er heimilt í reglugerð að ákveða að takmörkun á heimild skv. 2. málsl. skuli í ákveðnum fisktegundum miðast við hærri viðmiðun en 2% af heildaraflaverðmæti botnfiskaflamarks.
- Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði XXVI til bráðabirgða við lögin, sbr. ákvæði IV til bráðabirgða við lög nr. 1 14. janúar 1999:- 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Byggðastofnun hefur til ráðstöfunar á fiskveiðiárinu 2004/2005 aflaheimildir sem nema 750 þorskígildislestum og á fiskveiðiárinu 2005/2006 aflaheimildir sem nema 375 þorskígildislestum til að styðja byggðarlög sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
- 2. mgr. fellur brott.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 2004. Þó skal ákvæði a-liðar 3. gr. og ákvæði b-liðar 3. gr. að því er varðar línuveiðar á steinbít og ýsu koma til framkvæmda 1. febrúar 2004.Samþykkt á Alþingi 15. desember 2003.